Saturday, April 6, 2013

Páskafri á Íslandi & ný snilld

Sælar elskurnar.

Um páskana fór ég heim til Íslands í tvær vikur. Þessar tvær vikur voru þær allra huggulegustu, eyddi mestum tíma með fjölskyldunni, vinkonum mínum og sundferðirnar voru tvær á dag nær alla daga - enda veðrið yndislegt.

Litli brósi fermdist á Pálmasunnudag. Yndislegur dagur, ljúft veður & gaman að hitta ættingja.

Við systkinin með prestunum, Ragnheiði & Skírni.
Ég kom tilbaka endurnærð á miðvikudaginn seinasta, ótrúlega spennt að koma í nýju, fínu íbúðina mína.

Verð að deila með ykkur nýrri snilld sem ég var að uppgötva og keypti á Íslandi. Lífrænar kókosflögur ristaðar upp úr hrásykri.  NAMM! Skellti þessu út í hafragrautinn minn áðan.

Hafragrautur dagsins:

Hafragrautur sem ég lét standa í ísskáp yfir nótt
Kotasæla
Vínber
Banani
Kanill
Hrásykurs-kókosflögur

Sólin skein þegar ég var mætt út klukkan níu í morgun.
Hafragrauturinn, kaffið & snilldin!


Eigið yndislega helgi!

Love,
Lilja

1 comment:

  1. Like á sundferðirnar, myndi gera það sama og namm hvað mig langað smakka svona kókosflögur!!
    kv.Hildur Ómars ;)

    ReplyDelete